Prjónaferð til Skotlands með Helgu Jónu – kennt á íslensku | 18. – 25 maj 2027

Prjónaferð til Skotlands með Helgu Jónu – kennt á íslensku | 18. – 25 maj 2027

IntroProgramDem møder duBeliggenhedFlyGalleri

Praktiske informationer

Priser pr. person:

Verð

Verð á mann í tveggja manna herbergi:
17.300 DKK (u.þ.b. 325.000 ISK)

Verð á mann í eins manns herbergi:
19.500 DKK (u.þ.b. 366.000 ISK)

Verðið er gefið upp í dönskum krónum (DKK). Upphæðin í íslenskum krónum (ISK) er aðeins til viðmiðunar og getur breyst eftir gengi á greiðsludegi.

Efnisgjald (garn og ljósrit/kennsluleiðbeiningar): 150 DKK (ca 3000 isl.kr) á þátttakanda. Gjaldið greiðist beint til kennara á staðnum.

 

Greiðsla

Hægt er að greiða með millifærslu eða Mastercard.

Millifærsla

Við greiðslu með millifærslu færðu IBAN- og SWIFT/BIC-upplýsingar okkar ásamt greiðsluupplýsingum. Greiðslan skal fara fram í dönskum krónum (DKK). Bankinn þinn sér um að umreikna upphæðina úr íslenskum krónum samkvæmt gildandi gengi.

Mastercard

Einnig er hægt að greiða með Mastercard. Greiðslan fer fram í dönskum krónum (DKK) og kortaútgefandi þinn sér um umreikning í íslenskar krónur samkvæmt gildandi gengi og skilmálum.


Vælg et værelse herunder:

Prisen inkluderer

Verðið innifelur:

  • Flug beint frá Keflavík til Edinborgar fram og til baka.
  • Gistingu á fallegu nýuppgerðu hóteli í notalegum herbergjum með sérbaðherbergi.
  • Allar máltíðir á skólanum. Boðið er upp á tveggja rétta máltíðir. Þátttakendur greiða sjálfir fyrir einn hádegisverð á frídeginum og einn kvöldverð í Peebles.
  • Allt kaffi og te í tengslum við máltíðir og á herbergjum.
  • Kökur á völdum tímum samkvæmt dagskrá.
  • Rútuferðir í sameiginlegum dagsferðum okkar.
  • Sjö námslotur í prjónakennslu.
  • Viskísmökkun.
  • Aðgang að stóru spa-svæði á The Hydro í Peebles, í um 10 mínútna göngufjarlægð frá skólanum – fallegu fyrrverandi heilsuhæli frá árinu 1881 sem hefur verið breytt í lúxushótel.
  • Allir fyrirlestrar.
  • Allur aðgangseyrir.
  • Framlag í Ferðatryggingasjóðinn.
  • Flugvallarskattar og gjöld.

Prisen inkluderer ikke

Verðið innifelur ekki:

  • Einn hádegisverð á frídeginum.
  • Einn kvöldverð í Peebles.
  • Drykkjarföng.
  • Efnisgjald (garn og ljósrit/kennsluleiðbeiningar): 150 DKK (ca 3000 isl.kr) á þátttakanda. Gjaldið greiðist beint til kennara á staðnum.

 

Greiðsluskilmálar:

Við skráningu er óskað eftir staðfestingargjaldi að upphæð 3.000 DKK. Eftirstöðvar greiðast tveimur mánuðum fyrir brottför.

Í sérstökum tilvikum er mögulegt að greiða með Mastercard. Ef óskað er eftir því, vinsamlegast takið það fram við skráningu.

loader-image
Skotland – Peebles
Skotland
10:49, september 21, 2026
temperature icon 16°C
overcast clouds
Solopgang 06:55
Solnedgang 19:16

Intro

KYNNING

Getur maður ímyndað sér eitthvað meira viðeigandi en að fara á prjónanámskeið í hinu stórbrotna Skotlandi? Landinu með fleiri kindur en fólk, einhverja bestu ull sem völ er á og langa hefð fyrir prjóni og ullarvinnslu í öllum sínum myndum. Þetta er skylduferð fyrir alla sem elska prjón og fallegt, innblásið umhverfi.

Annas Højskole hefur fengið til liðs við sig prjónahönnuðinn Helgu Jónu Þórunnardóttur sem mun halda kenna ýmsar aðferðir, til dæmis uppfitjanir, affellingar, kanta, hnappagöt, frágang og ræðum hvenær best er að nota mismunandi aðferðir. Einnig verður unnið með spennandi áferðir og leikið með mismunandi garntegundir og liti.

Þetta verður vika full af fínlegum smáatriðum og fallegum frágangi sem geta gert prjónlesið þitt enn fallegra, eitthvað sem orðið er einkennismerki Helgu Jónu, þar sem hún elskar að kafa ofan í öll smáatriði prjónsins. Eftir vikuna í Skotlandi kemur þú vonandi uppfull/ur af innblæstri fyrir næstu verkefni og með enn betri lykkjuskilning og þekkingu sem nýtist í framtíðarverkefnum.

Og svo höfum við fengið Sisse Skovbakke til liðs við okkur. Hún ætlar að deila með okkur gífurlegum áhuga sínum á Skotlandi og víðtækri þekkingu sinni á landinu. Í løpet af vikunni mun hún fræða okkur um Skota, ættflokkana, kilta og nokkuð stirt samband þeirra við England.

Við förum í ferð til einnar af stórborgum Skotlands, Edinborgar eða Glasgow, í heimsókn í textílverksmiðju og til New Lanark, fyrrverandi bómullarspunaverksmiðju sem er nú á heimsminjaskrá UNESCO.

Lýðháskólinn okkar er staðsettur á jaðri bæjarins Peebles í svæðinu The Scottish Borders. Svæðið er hæðótt og fjalllent. Þar eru bújarðir og skógar og stundum langt á milli þorpa. Sauðfjárbú taka hvert við af öðru og árnar River Clyde og River Tweed liðast í gegnum landslagið. Náttúran er græn, falleg og gróskumikil.

Á námskeiðinu búum við í fyrrverandi herragarði sem tilheyrði Ballantyne-fjölskyldunni, einum stærsta textílframleiðanda Peebles sem rak margar verksmiðjur og vefnaðarverkstæði á svæðinu. Húsið er nú nýuppgert hótel með björtum herbergjum á mörgum hæðum. Þar er einnig kaffihús, bar, fallegur garður með grasflötum og blómum ásamt notalegum setkrókum inni og úti, og staðurinn er miðsvæðis við enda aðalgötunnar. Eldhús skólans býður upp á góðan mat úr staðbundnu hráefni og við borðum flestar máltíðir á skólanum. Á kvöldin er boðið upp á tveggja rétta máltíð.

Peebles er notalegur bær með verslunum, kaffihúsum og nokkrum pöbbum. Þar búa um 10.000 manns og bærinn liggur við ána River Tweed, innan við klukkustundarakstur frá Edinborg. Peebles á sér langa og ríka sögu sem konunglegur kaupstaður og þar var umfangsmikil textílframleiðsla Suður-Skotlands stofnuð. Ótal ullarspunaverksmiðjur, vefnaðarhús og textílverksmiðjur gerðu svæðið auðugt á 19. og 20. öld.

Á sama tíma varð Peebles vinsæll heilsulindarbær sem yfirstéttin frá kolamenguðu stórborgunum Edinborg og Glasgow sótti til. Hún dvaldi á heilsuhótelinu The Hydro Hotel. The Hydro er enn starfandi og á námskeiðinu höfum við frían aðgang að spa-deild þess, þar sem eru bæði gufubað, sauna, líkamsræktaraðstaða og sundlaug, svo munið eftir sundfötunum!

 

Program

DAGSKRÁ

Prjón í Skotlandi 18.–25. maí 2027

Dagur 1 – Þriðjudagur 18. maí

Brottför frá Keflavík með Icelandair kl. 10.00, komu til Edinborgar kl. 13.20.

Rútuferð til Peebles.

Koma til Peebles og skólans. Innritun í herbergi.

17.00: Kaka + kaffi/te og velkomin til Anna’s Højskole í Skotlandi með Sisse Skovbakken og Helga Jónu Þórunnardóttur.

19.00: Kvöldverður + kynning á þátttakendum.

Eftir kvöldmat er frjáls tími til að njóta umhverfisins og/eða koma sér fyrir í herberginu.

 

Dagur 2 – Miðvikudagur 19. maí

8.30: Morgunleikfimi og morgunsöngur með Sisse.

9.00: Morgunverður. 

10.00–12.30: Prjón – námskeið 1 með Helgu.

13.00: Hádegisverður á skólanum.

14.00: Gönguferð í og um Peebles sem á sér áhugaverða sögu. Við göngum einnig niður að ánni Tweed sem rennur í gegnum bæinn. 

15.30–18.00: Kaffi/te + kaka og Prjón – námskeið 2 með Helgu

19.00: Kvöldverður á skólanum.

20.00: Fyrirlestur „Highlights of Highland History” með Sisse Skovbakken.

 

Dagur 3 – Fimmtudagur 20. maí

8.30: Morgunverður og morgunsöngur.

10.00: Rúta til New Lanark, nesti tekið með. Leiðsögn og frásögn af verkamannasamfélaginu sem gamla bómullarspunaverksmiðjan myndaði frá miðri 18. öld.

14.00: Síðdegiskaffi/-te á The Mill Hotel’s Mill One Restaurant.

15.30: Haldið áfram með rútu til Calzeat.

16.00: Heimsókn til textílfyrirtækisins Calzeat í Symington þar sem við fáum leiðsögn.

18.00: Við keyrum aftur til Peebles.

19.00: Kvöldverður á skólanum.

20.00: Notaleg samvera, prjón og kvöldsöngur.

 

Dagur 4 – Föstudagur 21. maí

8.30: Morgunleikfimi og morgunsöngur með Sisse.

9.00: Morgunverður. 

10.00–12.30: Prjón – námskeið 3 með Helgu.

13.00: Hádegisverður á skólanum.

16.00–19.00: Prjón – námskeið 4 með Helgu.

19.00: Kvöldverður á skólanum.

20.00: Mary, eigandi garnverslunarinnar Wild Wool í Peebles, heldur fyrirlestur um framleiðslu og sölu á skosku garni.

 

Dagur 5 – Laugardagur 22. maí

7.45: Morgunverður.

8.30: Rúta til Edinborgar.

Við göngum saman fyrsta hluta leiðarinnar upp The Royal Mile. Að því loknu förum við hvert í sína áttina og finnum okkur sjálf hádegisverð í borginni. Áður en við höldum aftur til Peebles heimsækjum við prjónaverslunina Ginger Twist Studio.

15.30: Við keyrum frá Edinborg.

16.45–18.45: Prjón – námskeið 5 með Helgu.

19.00: Kvöldverður á skólanum.

20.00: Viskísmökkun á skólanum með viskísérfræðingnum John Lees.

 

Dagur 6 – Sunnudagur 23. maí

8.30: Morgunleikfimi og morgunsöngur með Sisse.

9.00: Morgunverður. 

10.00–12.00: Prjón – námskeið 6 með Helgu.

13.00: Hádegisverður á skólanum.

14.00: Frjáls síðdegi sem þú getur varið í fallega garði lýðháskólans, farið í sund og gufu á The Hydro, sem við höfum aðgang að, eða þú getur farið í göngutúr og skoðað Peebles nánar.

Kvöldverður er á eigin vegum í bænum (ekki innifalið í verði).

Að kvöldi er hægt að njóta samveru og prjóna í prjónastofunni.

 

Dagur 7 – Mánudagur 24. maí

8.30: Morgunverður og morgunsöngur.

10.30–12.30: Prjón – námskeið 7 með Helgu.

13.00: Hádegisverður á skólanum.

14.00–16.00: Prjón – námskeið 8 með Helgu.

16.00: Sýning á verkum vikunnar með tei og scones.

19.00: Lokakvöldverður.

20.30: Lokakvöld með skoskri hátíðarmáltíð og ceilidh, skoskum þjóðdönsum við lifandi tónlist.

 

Dagur 8 – Þriðjudagur 25. maí

Morgunverður og morgunsöngur.

Kveðjustund og brottför til Edinborgarflugvallar.

Brottför frá Edinborgar til Keflavík.

Brottför frá Edinborg með Icelandair kl. 14.15, komu til Keflavíkur kl. 15.50.

 

*Við áskiljum okkur rétt til breytinga.

 

Dem møder du

ÞÁTTTAKENDUR OG KENNARAR

 

Helga Jóna Þórunnardóttir

Helga Jóna Þórunnardóttir er ástríðufullur prjónari sem elskar að kafa ofan í smáatriðin til að ná enn fallegri frágangi í prjónlesi sínu. Hún hefur kennt við Skals Højskole for design- og håndarbejde síðan 2011, vinnur náið með Isager og hefur einnig tekið þátt í að skapa margar spennandi ISAGER-línur. Hún skrifaði bókina HANDCRAFT ásamt Helgu Isager, sem þær líta á sem uppflettirit þar sem hún er full af gagnlegum prjónaaðferðum.

Hún brennur fyrir góðri prjónatækni og elskar að miðla þekkingu sinni og reynslu. Auk kennslu og fyrirlestra víða í Danmörku heldur hún einnig námskeið á Íslandi, í Marokkó, Noregi og Japan.

Helga Jóna er frá Íslandi og ólst þar upp. Hún átti og rak hannyrðaverslunina Nálina í Reykjavík, frá 2007-2011 og hefur yfir 20 ára reynslu af kennslu í prjóni og útsaumi. Hún hefur skipulagt prjónaferðir fyrir dani til Íslands síðan 2015.

Hún hannar sínar eigin uppskriftir sem má finna á heimasíðu hennar:
www.strikketoj.com

 


Sisse Skovbakke
Sisse Skovbak

Annar leiðbeinandi ykkar er Sisse Skovbakke, sem elskar allt sem tengist Skotlandi. Hún hefur ferðast til landsins og dvalið þar ótrúlega oft.

Sisse er í góðu skapi, elskar tónlist og prjónar líka. Hún er með tónlist sem aðalfag frá háskóla og hefur átt yndislegan og fjölbreyttan starfsferil. Hún kenndi tónlist í tónlistarskóla í 10 ár og síðan í 10 ár við kennaramenntunina í Nørre Nissum.

Eftir nokkrar forvitnilegar útúrdúrar, meðal annars sem gróðurhúsagarðyrkjumaður og aðstoðarmaður í eldhúsi á stofnun, hefur hún nú fundið sinn stað í lýðháskólaheiminum, þar sem hún hefur gott svigrúm og kann vel við sig.

Samhliða „alvöru“ starfsferli sínum hefur Sisse starfað sem sjálfstætt starfandi kórstjóri og kórþjálfari, og söngur og raddbeiting hafa fengið að skipa stóran sess í nánast öllu sem Sisse hefur tekið sér fyrir hendur. Jafnvel í garðyrkjunni.

Sisse á þrjá uppkomna syni sem allir eru vel á veg komnir með sitt eigið líf og fjölskyldur, og það hefur gefið henni tíma og rými til að sinna eigin draumum. Eftir að hafa í mörg ár lifað fríin sín sem „Skoti í skápnum“ ákvað Sisse því undir lok árs 2020 að setja húsið sitt á sölu og flytja til Skotlands til frambúðar. En Brexit kom í veg fyrir það, svo nú verður hún að láta sér nægja að vera „Skoti í skápnum“ í fríunum. Og tónlistin. Og plönturnar. Og prjónarnir. Og...

 


John Lees

John Lees er sagnfræðingur, fæddur í Englandi og býr í Edinborg þar sem hann er ástríðufullur viskísafnari. John hefur smakkað yfir 500 viskítegundir frá öllum heimshornum og meðal uppáhalds eru sjaldgæf viskí frá afskekktum litlum skoskum eimingarhúsum.

Á viskíkvöldinu okkar smökkum við sex af betri single malt viskíum Skotlands, hina ekta vöru, bæði frá hálendinu og láglendinu. Við þekkjum eflaust bragðtóna af mó, reyk, leðri, olíu og vanillu á meðan við njótum frásagna Johns um viskí og sérstakan sess þess í hjarta Skota, svo ekki sé minnst á mikilvægi þess í endalausum átökum Englands og Skotlands í gegnum tíðina.

 

Beliggenhed

STAÐSETNING

 

Námskeiðsstaðurinn og umhverfið

Lýðháskólinn okkar er staðsettur á jaðri bæjarins Peebles í svæðinu The Scottish Borders, sunnan við Edinborg. Svæðið er hæðótt og fjalllent og hluti af The Southern Uplands. Þar eru bújarðir og skógar og stundum langt á milli þorpa.

Sauðfjárbú taka hvert við af öðru og árnar River Clyde og River Tweed liðast um landslagið. Náttúran er græn, falleg og gróskumikil.

 

Gisting – The Park Hotel

Á námskeiðinu búum við í fyrrverandi herragarði sem tilheyrði Ballantyne-fjölskyldunni, einum stærsta textílframleiðanda Peebles sem rak margar verksmiðjur og vefnaðarverkstæði á svæðinu. Húsið er nú nýuppgert hótel, The Park Hotel, með björtum herbergjum á mörgum hæðum.

Í dag er The Park Hotel þekkt fyrir sögulegan sjarma sinn og sambland nútímaþæginda og klassísks stíls sem gefur gestum tilfinningu fyrir því að stíga aftur í tímann á meðan þeir njóta þæginda nútímans.

Hótelið er einnig með kaffihús, bar, bakarí og fallegan garð með notalegum setkrókum inni og úti. Hótelið er miðsvæðis við enda aðalgötunnar.

 

Um Peebles

Peebles er notalegur bær með verslunum, kaffihúsum og nokkrum pöbbum. Þar búa um 10.000 manns og bærinn liggur við ána River Tweed, innan við klukkustundarakstur frá Edinborg.

Peebles á sér langa og ríka sögu sem konunglegur kaupstaður og þar var umfangsmikil textílframleiðsla Suður-Skotlands stofnuð. Ótal ullarspunaverksmiðjur, ullarvefnaðarhús og textílverksmiðjur gerðu svæðið auðugt á 19. og 20. öld.

Á sama tíma varð Peebles vinsæll heilsulindarbær sem yfirstéttin frá kolamenguðu stórborgunum Edinborg og Glasgow sótti til. Hún dvaldi á heilsuhótelinu The Hydro Hotel og fór í gönguferðir til að njóta fersks lofts í fallegu hæðóttu umhverfinu.

The Hydro er enn starfandi og á námskeiðinu höfum við sem betur fer frían aðgang að spa-deild þess þar sem eru bæði gufubað, sauna, líkamsræktaraðstaða og sundlaug,  svo munið eftir sundfötunum!

Fly

18.5. Keflavík - Edinborgar - 10.00 - 13.20 (local time)

25.5. Edinborgar - Keflavik - 14.15 - 15.50 

 

*Við áskiljum okkur rétt til breytinga.

Galleri